Skorað á áhorfendur að mæta í rauðu
02.06.2015 19:04
Kvennalandslið Íslands í blaki hefur leik í kvöld þegar liðið mætir Liechtenstein. Blakkeppnin hófst með leik San Marínó og Svartfjallalands.Liðið leikur í rauðu í kvöld og því eru áhorfendur hvattir til að lita áhorfendapallana rauða með því að mæta í stíl.
Keppnin fer fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal sem hefur verið útbúin sem blakhöll. Þar hefur verið lagður sérstakur blakdúkur og komið upp sætum fyrir 420 áhorfendur.
.png)

1270.jpg?proc=Gestgjafar)
