Líf og fjör í Sjálandsskóla
Síðustu dagar hafa verið viðburðarríkir í undirbúningi fyrir Smáþjóðaleikana sem fram fara 1.-6. júní næstkomandi, ekki bara á keppnissvæðum og í Laugardal heldur hafa verið í gangi spennandi verkefni tengd leikunum víða annars staðar.
Nemendur í 1.- 7. bekk í Sjálandsskóla og nemendur Alþjóðaskólans tóku forskot á sæluna og voru með sína eigin Smáþjóðaleika föstudaginn 29. maí.
Þar var keppt í hinum ýmsu íþróttagreinum og Blossi, lukkudýr leikanna, heilsaði upp á nemendur í hádeginu. Hann lék á alls oddi eins og hans er von og vísa, stóð á höndum og tók heljarstökk. Vakti hann mikla lukku hjá nemendum.
„Leikarnir” þóttu takast einstaklega vel og nemendur beggja skólanna skemmtu sér vel, enda sól og blíða og allir glaðir.
.png)

1270.jpg?proc=Gestgjafar)
