Íþróttamiðstöð Ármanns/Laugaból

Íþróttamiðstöð Ármanns/Laugaból

Keppni í fimleikum fer fram í Íþróttamiðstöð Ármanns/Laugabóli

Ármannsheimilið var tekið í notkun í september árið 2006 og er stærsta og fullkomnasta fimleika- og júdóaðstaðan í Reykjavík. Fimleikasalurinn er rúmlega 1700 fermetrar með áhorfenda aðstöðu fyrir 450 manns en á Smáþjóðaleikunum verður áhorfenda aðstaða fyrir um 900 manns. Á neðri hæðinni eru þrír fullkomnir keppnisvellir fyrir júdó, í um 900 fermetra sal sem er með 250 manna áhorfendastúku. Keppni í júdó á Smáþjóðaleikunum verður þó haldin í fimleikasalnum að lokinni keppni í fimleikum. Í tilefni Smájóðaleikanna voru öll keppnisáhöld endurnýjuð og er salurinn sá best útbúni á landinu með keppnissetti frá Spieth.

Sökum góðrar aðstöðu fyrir fimleika hafa mörg stærri mót fimleikasambandsins farið fram í salnum og nú í mars voru Íslandsmót í frjálsum æfingum og Íslandsmót í þrepum haldin í Ármannsheimilinu.